PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
   lau 16. maí 2026 11:00
Brynjar Ingi Erluson
Gerir tveggja ára samning við Man Utd
Mynd: EPA
Michael Carrick verður áfram með Manchester United, en hann er sagður hafa skrifað undir tveggja ára samning með möguleika á þriðja árinu.

Carrick tók við United af Ruben Amorim í byrjun árs, rétti úr kútnum og kom liðinu aftur í Meistaradeild Evrópu.

Mikil ánægja er með hans störf og hafa margir leikmenn blómstrað undir hans stjórn.

Enskir miðlar hafa sagt frá því að United hafi ákveðið að gefa Carrick starfið til frambúðar og segir Fabrizio Romano allt klappað og klárt.

Hann segir að Carrick hafi þegar skrifað undir tveggja ára samning með möguleika á eins árs framlengingu.

Man Utd er í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og getur tryggt það sæti með því að ná í stig gegn Nottingham Forest á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner
banner