Mohamed Salah sendi frá sér mjög athyglisverða yfirlýsingu í dag þar sem hann gagnrýndi m.a. leikstíl liðsins undir stjórn Arne Slot.
„Ég hef séð þetta félag breytast úr því að efast og í það að trúa, og frá því að trúa yfir í meistara. Það tók mikla vinnu og ég gerði alltaf allt sem ég gat til að hjálpa félaginu að komast á þennan stað. Ekkert fyllir mig meira stolti en það," sagði Salah m.a. í yfirlýsingunni.

Hann talaði um að vilja sjá Liverpool spila þungarokksboltann sem þeir voru þekktir fyrir undir stjórn Jurgen Klopp og að nýir leikmenn þurfa að aðlagast þeim leikstíl.
Steven Gerrard, goðsögn og fyrrum fyrirliði Liverpool, tjáði sig um yfirlýsinguna í útsendingu TNT Sport á úrslitaleik enska bikarsins í dag.
„Þetta er gríðarlega athyglisvert. Salah talar ekki mikið eða tjáir sig á netinu og hvað þá svona. Hann er að senda skilboð út á við að hlutirnir í búningsklefanum eru ekki í lagi og það særir hann að sjá það með berum augum," sagði Gerrard.
„Ég er hissa á tímasetningunni, fyrir síðasta leikinn hans fyrir Liverpool. Þið hafið verið í fjölmiðlum, hann talar mjög sjaldan, hann hefur verið í viðtölum undanfarið því hann er auðvitað að marka ótrúlegan feril hjá Liverpool. En þetta er ansi skaðlegt fyrir stjórann og starfsfólkið hjá Liverpool hvað varðar stöðu liðsins. Það er mín skoðun á því.“
„Þetta er skrítið og óvenjulegt. Hann mun tala mikið við fjölmiða í kringum sínn síðasta leik. Menn munu segja honum að útskýra mál sitt betur. Ég hlakka til komandi daga því þetta er óvenjulegt fyrir leikmann Liverpool og Salah," sagði Gerrarrd að lokum.