Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 16. júlí 2022 17:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu atvikið: Richarlison kýldi leikmann Sevilla
Mynd: Getty Images
Tottenham mætti Sevilla í æfingaleik í Suður-Kóreu í dag. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Staðan var markalaus í hálfleik en í upphafi síðari hálfleiks sauð uppúr þegar Gonzalo Montiel leikmaður Sevilla keyrði inn í Heung-Min Son en leikmenn Tottenham brugðust illa við.

Cristian Romero og Richarlison blönduðu sér í slagsmálin og Richarlison kýldi leikmann Sevilla hressilega.

Ekki mikil vinátta í þessum vináttuleik. Atvikið má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner