Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 16. ágúst 2022 15:30
Elvar Geir Magnússon
Fofana búinn að gera munnlegt samkomulag við Chelsea
Fofana hefur leikið afar vel fyrir Leicester.
Fofana hefur leikið afar vel fyrir Leicester.
Mynd: Getty Images
Fabrizio Romano segir að varnarmaðurinn Wesley Fofana hafi gert samkomulag við Chelsea um kaup og kjör. Hann vonast nú eftir því að félagið nái samningum við Leicester um kaupverð.

Chelsea leggur áherslu á að fá Fofana og er að undirbúa nýtt tilboð. Þessi 21 árs Frakki gæti orðið dýrasti varnarmaður heims.

Leicester vill ekki missa Fofana í þessum glugga og hefur sett rúmlega 80 milljóna punda verðmiða á hann. Heimildarmenn Guardian segja að Chelsea muni á endanum ganga að verðmiða Leicester fyrir Fofana.

Það hefur átt sér stað endurnýjun í vörn Chelsea og Thomas Tuchel fengið þá Marc Cucurella og Kalidou Koulibaly til liðsins.




Athugasemdir
banner
banner