Borussia Dortmund komst upp úr gríðarlega erfiðum Meistaradeildarriðli í síðustu viku.
Dortmund átti heimaleik gegn Slavia Prag sem reyndist afar erfiður en sem betur fer fyrir heimamenn var Roman Bürki í banastuði á milli stanganna.
Dortmund vann leikinn 2-1 og tryggði sér annað sæti riðilsins, eftir toppliði Barcelona og á undan Inter sem dettur niður í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar.
Bürki var valinn sem maður leiksins og létu stuðningsmenn í sér heyra að leikslokum. Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndband af viðbrögðum stuðningsmanna Dortmund sem stóðu upp fyrir markverðinum og kölluðu nafn hans.
Bürki Bürki Bürki 🖤💛
— BRAGI 09 (@BRAGI09) December 10, 2019
Standing Ovation ✔️
Wieder einer dieser verrückten Champions-league Abende 😲@BVB @Senfrock @Kalli09Do @BVBBuzz pic.twitter.com/rVw2fffLG5
Athugasemdir