Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. janúar 2020 14:21
Elvar Geir Magnússon
Williams minnir Solskjær á Gary Neville
Brandon Williams.
Brandon Williams.
Mynd: Getty Images
Hinn nítján ára Brandon Williams virðist vera orðinn fyrsti kostur hjá Manchester United í stöðu vinstri bakvarðar.

Williams fer af krafti í allt inni á vellinum og var Ole Gunnar Solskjær spurður að því hvort gæta þyrfti þess að leikmaðurinn ungi verði með hausinn rétt skrúfaðan á gegn Liverpool á sunnudag.

„Virðist ég þurfa að tala við hann? Hann hefur staðist allar áskoranir sem við höfum lagt fyrir hann," segir Solskjær.

„Hugarfar hans minnir mig mikið á Gary Neville."

Williams hefur fengið mikið lof að undanförnu, meðal annars frá Gary Neville sem er fyrrum fyrirliði United og lyfti fjölda bikara í búningi félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner