Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 17. febrúar 2021 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland í dag - ÍBV mætir í Árbæinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er einn keppnisleikur hér á Íslandi í dag þar sem Fylkir tekur á móti ÍBV í Lengjubikar karla.

Lengjubikarinn fór af stað um síðustu helgi og er hann kominn á fleygiferð.

Í dag tekur Fylkir á móti ÍBV á fallega gervigrasvellinum í Árbæ. Leikurinn hefst klukkan 18:00.

Fylkir hefur litið vel út á undirbúningstímabilinu og komst meðal annars í úrslit Reykjavíkurmótsins þar sem liðið tapaði fyrir Val. Það verður gaman að sjá hvernig Vestmannaeyingar, sem ollu vonbrigðum í Lengjudeildinni í fyrra, mæta til leiks í dag.

miðvikudagur 17. febrúar

Lengjubikar karla - A-deild, riðill 4
18:00 Fylkir-ÍBV (Würth völlurinn)
Athugasemdir
banner
banner
banner