Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   þri 17. mars 2026 14:04
Kári Snorrason
Cecilía verðlaunuð fyrir síðasta tímabil
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Gunnarsdóttir var valin í lið ársins á síðasta tímabili og var kjörin besti markvörður deildarinnar af leikmönnum. Verðlaunin voru veitt í gær.

Inter endaði í 2. sæti deildarinnar á síðasta tímabili, fjórum stigum á eftir toppliði Juventus. Inter átti alls þrjá fulltrúa í liði ársins en ásamt Cecilíu voru þær Ivana Andres Sanz og Marija Ana Milinkovic einnig í liði ársins.

Á núverandi tímabili er Inter jafnframt í 2. sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Roma. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Telma Ívarsdóttir eru einnig leikmenn Inter.



Slapp
banner
banner