Lið vikunnar í enska - 16 ára og gæti hafa innsiglað titilinn


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Hinn 16 ára gamli Max Dowman kom af bekknum hjá Arsenal og átti stóran þátt í að landa 2-0 sigri. Hann skoraði annað markið og varð þá yngsti markaskorari ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi.
Seinna á laugardaginn gerði Manchester City 1-1 jafntefli við West Ham í London.
Troy Deeney, sérfræðingur BBC, sér um að velja lið umferðarinnar.

Markvörður: Aaron Ramsdale (Newcastle) - Átti stóran þátt í sigrinum gegn Chelsea. Ekki bara markvörslurnar og hvernig hann handsamaði boltann heldur líka með spilagetu sinni úr vörninni.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Dominik Szoboszlai (Liverpool) - Spilar hægri bakvörðinn eins og hann hafi gert það allt sitt líf. Skoraði flott aukasyrnumark í 1-1 jafntefli gegn Tottenham. Þó úrslitin hafi ekki verið að óskum var hann besti maður vallarins.

Mynd: EPA

Varnarmaður: William Saliba (Arsenal) - Rolls Royce.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Konstantinos Mavropanos (West Ham) - Var skepna fyrir West Ham gegn Manchester City. Miðvörður af gamla skólanum sem lét finna fyrir sér og skoraði með einu marktilraun West Ham á rammann.

Mynd: EPA

Varnarmaður: Jaka Bijol (Leeds) - Leeds missti mann af velli en Bijol setti í næsta gír og stýrði öllu. Fékk gult spjald en spilaði af skynsemi en samt ákefð eftir það. Leeds gerði markalaust jafntefli gegn Crystal Palace.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Joe Willock (Newcastle) - Hljóp mikið og gaf frá sér mikla orku. Sýndi mikla óeigingirni þegar hann lagði upp fyrir Anthony Gordon.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Joe Willock (Newcastle) - Hljóp mikið og gaf frá sér mikla orku. Sýndi mikla óeigingirni þegar hann lagði upp fyrir Anthony Gordon.

Mynd: EPA

Miðjumaður: James Milner (Brighton) - 40 ára og lék allan leikinn í 1-0 sigri gegn Sunderland. Sýndi reynslu sína og veit um hvað málið snýst.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Bruno Fernandes (Manchester United) - Sextán stoðsendingar á tímabilinu. Hann er herra Manchester United.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Anthony Gordon (Newcastle) - Hraði og kraftur. Heldur áfram að skora.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Rio Ngumoha (Liverpool) - Beinskeyttur og óhræddur. Leikurinn sveiflaðist Tottenham í hag eftir að hann fór út af.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Max Dowman (Arsenal) - 16 ára og gæti hafa tryggt Arsenal titilinn. Mögnuð innkoma og hans fyrsta mark verður lengi í minnum haft.

Mynd: EPA

Stjórinn: Eddie Howe (Newcastle) - Í miðju einvígi gegn Barcelona missir hann ekki einbeitinguna á úrvalsdeildinni. Frábær sigur gegn Chelsea og nær að halda mönnum ferskum með því að rótera.

Mynd: EPA


Mynd: BBC



