Fotbolti.net
17.05.21 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Zidane: Þetta eru lygasögur - Hef ekki sagt leikmönnum neitt

Zidane: Þetta eru lygasögur - Hef ekki sagt leikmönnum neitt
Canon

Mynd: Getty Images

Á erlendum miðlum voru birtar slúðursögur þar sem greint var frá því að Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, ætti að hafa sagt leikmannahópi sínum að hann myndi hætta sem stjóri félagsins.

Um þetta var meðal annars skrifað í <a href="https://fotbolti.net/news/16-05-2021/l-pool-aetli-ekki-ad-kaupa-kabak-thysku-storlidin-fylgjast-med-soknarmanni-sheffield" target="_blank">slúðurpakka gærdagsins.</a>
Zidane tjáði sig um þetta í viðtali eftir 1-0 sigur Real Madrid á Athletic Bilbao í næstsíðustu umferð spænsku La Liga í gær.

„Þetta eru lygasögur, hvernig get ég sagt leikmönnum mínum að ég sé að yfirgefa félagið á þetta mikilvægum tímapunkti á tímabilinu? Ég hef ekki sagt neitt við leikmenn um mína framtíð," sagði Zidane í gær.

Talið er þeir Carlo Ancelotti og Max Allegri séu efstir á lista Florentino Perez, forseta Real, ef Zidane ákveður að stíga til hliðar.

Ein umferð er eftir af La Liga og þarf Real Madrid að vinna í lokaumferðinni og treyst á að Atletico misstígi sig gegn Valladolid á útivelli til að verða meistari.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Villarreal11012
10Celta11012
11Alaves11-212
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.