Ítalskir fjölmiðlar segja að Angel Di Maria sé nálægt því að ganga frá skiptum yfir til Juventus á frjálsri sölu.
Samningur þessa 34 ára argentínska vængmanns við Paris Saint-Germain rennur út eftir tímabilið en hann hefur verið sjö tímabil í Frakklandi.
Samningur þessa 34 ára argentínska vængmanns við Paris Saint-Germain rennur út eftir tímabilið en hann hefur verið sjö tímabil í Frakklandi.
Di Maria ku fá eins árs samning með möguleika á eins árs framlengingu.
Di Maria kom til PSG frá Manchester United 2015 og hefur fimm sinnum orðið franskur meistari. Áður hafði hann unnið Meistaradeildina, La Liga og spænska bikarinn sem leikmaður Real Madrid.
Þá var hann hluti af argentínska landsliðinu sem komst í úrslitaleik HM 2014.
Athugasemdir