Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 17. júní 2019 14:58
Ívan Guðjón Baldursson
Ráðleggur Werner að skrifa undir eða fara
Mynd: Getty Images
Þýski sóknarmaðurinn Timo Werner hefur skorað 61 mark í 114 leikjum fyrir RB Leipzig frá komu sinni fyrir þremur árum. Samningur hans við félagið rennur út næsta sumar og neitar hann að skrifa undir nýjan samning.

Werner er 23 ára gamall og þykir afar öflugur. Hann hefur skorað 10 mörk í 24 landsleikjum og 50 mörk í 93 deildarleikjum með Leipzig.

„Timo vill ekki skrifa undir nýjan samning. Hingað til hefur ekkert félag sett sig í samband við okkur," sagði Ralf Rangnick, þjálfari Leipzig, í viðtali við Kicker.

„Það er ekki góð hugmynd fyrir Timo að vera áfram hérna án þess að skrifa undir. Það yrði erfitt fyrir samband hans við stuðningsmenn."

Werner hefur verið orðaður við Liverpool og FC Bayern að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner