Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 17. júlí 2022 19:46
Brynjar Ingi Erluson
2. deild kvenna: Völsungur ekki í vandræðum með Hamar
Völsungur vann Hamar nokkuð örugglega
Völsungur vann Hamar nokkuð örugglega
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Völsungur 6 - 1 Hamar
1-0 Harpa Ásgeirsdóttir ('10 )
2-0 Hildur Anna Brynjarsdóttir ('18 )
3-0 Karen Lind Einarsdóttir ('24 , Sjálfsmark)
3-1 Karen Inga Bergsdóttir ('46 )
4-1 Krista Eik Harðardóttir ('48 )
5-1 Berta María Björnsdóttir ('76 )
6-1 Krista Eik Harðardóttir ('90 )

Völsungur kjöldró Hamar, 6-1, í 2. deild kvenna er liðin mættust á Húsavík í dag.

Heimakonur leiddu með þremur mörkum í hálfleik. Harpa Ásgeirsdóttir og Hildur Anna Brynjarsdóttir komu liðinu í 2-0 áður en Karen Lind Einarsdóttir varð fyrir því óláni að skora í eigið net.

Karen Inga Bergsdóttir minnkaði muninn strax í upphafi síðari hálfleiks en Völsungur svaraði með fjórða markinu frá Kristu Eik Harðardóttur.

Berta María Björnsdóttir bætti við fimmta markinu áður en Krista Eik gerði sjötta og síðasta markið undir lok leiks.

Völsungur er í 3. sæti með 17 stig en Hamar í næst neðsta sæti með 1 stig.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner