Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 17. september 2020 18:07
Aksentije Milisic
Dzeko að ganga til liðs við Juventus - Milik til Roma
Mynd: Getty Images
Edin Dzeko, framherji Roma, er á leiðinni til Juventus og þá fer Arkadiusz Milik til Roma frá Napoli. Þetta segir Fabrizio Romano rétt í þessu.

Luis Suarez fer ekki til Juventus og þess vegna leitaði félagið til Dzeko í kjölfarið. Allt virðist vera klárt og nú á einungis eftir að klára læknisskoðanir áður en skiptin verða staðfest.

Bosníumaðurinn stóri og stæðilegi kom til Roma endanlega árið 2016 frá Manchester City en árið á undan var hann á láni hjá félaginu. Hann spilaði alls 172 leiki og skoraði 78 mörk.

Milik kom til Napoli fá Ajax árið 2016 og þar hefur hann skorað 38 mörk í 93 leikjum.

Þá segir Fabrizio að Atletico Madrid sé að reyna fá Suarez.


Athugasemdir
banner
banner
banner