Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 17. september 2022 11:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Akanji alltaf spurður út í Haaland: Verið svona í tvö og hálft ár
Mynd: EPA

Manuel Akanji miðvörður Manchester City hefur komið vel inn í liðið en hann er í byrjunarliðinu sem mætir Wolves í dag.


Hann var til viðtals fyrir leikinn en þar var hann spurður hverju hann þyrfti að aðlagast mest á Englandi.

„Það eru miklu meiri gæði, ákefð á æfingum," sagði Akanji.

Hann var spurður út í Erling Haaland en þeir voru samherjar hjá Dortmund.

„Ég þarf að svara einhverjum spurningum um hann í hverju einasta viðtali. Ég er orðinn vanur því, þetta hefur verið svona í tvö og hálft ár. Hann er frábær gaur og ég vona að hann haldi áfram að skora mörk," sagði Akanji.


Athugasemdir
banner
banner
banner