Það fer einn leikur fram í Fótbolta.net mótinu og tveir leikir í Reykjavíkurmóti kvenna.
HK og Keflavík mætast í Fótbolta.net mótinu en þetta er annar leikur liðanna í mótinu. Bæði lið töpuðu fyrstu viðureigninni frekar stórt. HK tapaði 4-0 gegn Leikni R. og Keflavík tapaði 5-2 gegn Breiðablik.
Þá eru tveir leikir í Reykjavíkurmóti kvenna. Fylkir átti þá að spila sinn fyrsta leik á mótinu gegn Val sem valtaði yfir KR í sínum fyrsta leik 12-0. Þeim leik hefur verið frestað.
Reykjavíkurliðin Þróttur og Víkingur mætast og Fjölnir og KR mætast.
þriðjudagur 18. janúar
Fótbolta.net mótið - A-deild, riðill 1
18:45 HK-Keflavík (Kórinn)
Reykjavíkurmót kvenna - A-riðill
19:00 Þróttur R.-Víkingur R. (Víkingsvöllur)
19:30 Fjölnir-KR (Egilshöll)
Athugasemdir