Lið Bournemouth hefur áhuga á að ráða Thierry Henry sem nýjan knattspyrnustjóra félagsins.
Frá þessu greinir Sky Sports en Henry er í dag þjálfari Montreal Impact í bandarísku MLS-deildinni.
Jason Tindall var rekinn frá Bournemouth í byrjun febrúar og hefur félagið fundað með ýmsum mönnum síðustu tvær vikur.
Sky segir að Henry sé nú á óskalista félagsins en hann er fyrrum leikmaður Arsenal og þekkir vel til Englands.
Henry starfaði lengi sem aðstoðarþjálfari belgíska landsliðsins og var einnig hjá Lyon.
Bournemouth féll úr efstu deild í fyrra og spilar í Championship-deildinni.
Athugasemdir