Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 18. apríl 2021 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Valgeir Valgeirs velur draumaliðið sitt - „Eins og Son og Kane"
Lið Valgeirs. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Lið Valgeirs. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Mynd: Draumaliðsdeild Eyjabita
Í leik með Brentford B
Í leik með Brentford B
Mynd: Brentford
Valgeir Valgeirsson er á láni hjá Brentford frá HK, Valgeir hefur undanfarin tvö ár verið einn efnilegasti leikmaður Pepsi Max-deildarinnar og er hann búinn að velja draumaliðið sitt í Draumaliðsleik Eyjabita.

Tæpar tvær vikur eru í opnunarleik mótsins og þarf að vera búinn að velja rúmum klukkutíma fyrir leik.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Valgeir stillir upp í 3-4-3 fyrir fyrstu umferð mótsins.

„Þetta er blandað lið af ungum og gömlum. Sóknarlína sem mun koma mörgum á óvart en allir þrír munu skora 8+ í sumar. Svo er miðjan gríðarlega sóknarsinnuð. Varnarlínan er sterk sem mun skila mörgum clean sheets og einnig sóknar stigum," sagði Valgeir. Liðið hans heitir Virgil van Valli.

„Stebbi og Ívar verða eins og Son og Kane í enska fantasy. Þeir munu draga liðið áfram og síðan munu hinir skila sínum stigum.," bætti Valgeir við.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Athugasemdir
banner
banner