Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 18. júní 2021 09:00
Victor Pálsson
Higuain: Þarft að aðlagast til að þjóna Messi og Ronaldo
Mynd: Getty Images
Gonzalo Higuain, fyrrum leikmaður Juventus og Real Madrid, hefur tjáð sig um hvernig það er að spila með Lionel Messi og Cristiano Ronaldo.

Higuain spilaði með Ronaldo bæði hjá Juve og Real Madrid en hann leikur í dag með Inter Miami í Bandaríkjunum.

Higuain er þá samherji Messi í argentínska landsliðinu og þekkir þessar stórstjörnur nokkuð vel.

„Ég var svo heppinn að fá að spila með þeim báðum. Þeir eru í svo háum gæðaflokki að þú þarft að aðlagast til að þjóna þeim," sagði Higuain.

„Með þeim í liði fær þitt lið allavega þrjú eða fjögur færi til að skora í leik, ef þú ert gáfaður og skilur leikinn."

„Það voru forréttindi fyrir mig að spila með þeim."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner