Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   lau 18. ágúst 2018 18:33
Arnar Daði Arnarsson
Lárus Orri: Leikurinn, frammistaðan og úrslitin vonbrigði
Lárus Orri þjálfari Þórs.
Lárus Orri þjálfari Þórs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Leikurinn er vonbrigði, frammistaðan er vonbrigði og úrslitin eru vonbrigði, vonbrigðisdagur," sagði Lárus Orri Sigurðsson þjálfari Þórs eftir 4-1 tap liðsins gegn HK í 17. umferð Inkasso-deildarinnar.

Tveimur stigum munaði á liðunum fyrir leik en eftir úrslitin er HK nú með fimm stigum fleiri en Þór í 2. sæti deildarinnar.

Lestu um leikinn: HK 4 -  1 Þór

„Síðustu þrjá útileiki höfum við verið slakir og við höfum ekki mætt til leiks. Við mættum ekki til leiks á móti Skaganum og við vorum lélegir á móti góðu liði Fram en náum þó að klóra í eitt stig þar og við vorum ekki nægilega góðir í dag. Við létum þá líta hrikalega vel út í dag."

HK-ingar skoruðu þrjú mörk í fyrri hálfleik og skoraði Brynjar Jónasson fyrsta mark HK með skoti utan teigs sem Aron í marki Þórs hefði hæglega getað gert betur í.

„Fyrsta markið hjá þeim er alveg skelfilegt mark þar sem boltinn gjörsamlega lak inn. Áður en þeir skora annað markið fáum við þvílíkt tækifæri til að jafna leikinn ef og hefði, hefði það gerst hefði það kveikt í mínum mönnum og leikurinn breyst, ég veit það ekki. Síðan fáum við annað mjög klaufalegt mark á okkur og þá er þetta orðið erfitt."

Þór mætir Magna í næstu umferð á heimavelli á fimmtudaginn. Lárus Orri segir að staðan verði tekin eftir þann leik, hvort liðið eigi enn séns á sæti í Pepsi-deildinni.

Viðtalið við Lárus Orra í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner