Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 18. september 2020 14:59
Magnús Már Einarsson
Thiago Alcantara til Liverpool (Staðfest)
Thiago Alcantara er mættur til Liverpool.
Thiago Alcantara er mættur til Liverpool.
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur keypt spænska miðjumanninn Thiago Alcantara frá Bayern Munchen.

Thiago skrifaði undir fjögurra ára samning við Liverpool en hann mun fara í treyju númer 6 hjá félaginu.

Kaupverðið hljóðar upp á tuttugu milljónir punda en fimm milljónir punda geta bæst við síðar í bónusgreiðslum.

Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur verið afar sigursæll með Bayern Munchen undanfarin sjö ár en hann hefur nú ákveðið að kveðja félagið.

„Þetta er ótrúleg tifinning. Ég hef beðið lengi eftir þessu augnabliki og ég er mjög ánægður með að vera hér," sagði Thiago eftir undirskrift í dag.

Sjá einnig:
Thiago Alcantara: Ég þarf að vera fljótur að aðlagast liðinu
Klopp í skýjunum: Mjög svalt að Thiago vildi koma



Athugasemdir
banner