Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 18. október 2019 19:54
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Di Maria tvöfaldaði forystu PSG með vippu
Mynd: Getty Images
Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain eru þessa stundina 0-2 yfir gegn Nice í efstu deild í Frakklandi.

Angel Di Maria gerði bæði mörk PSG í fyrri hálfleik, það fyrra úr skyndisókn eftir laglega stoðsendingu Mauro Icardi og það seinna með glæsilegri vippu eftir góða sendingu frá Thomas Meunier.

Seinna markið er hægt að sjá hér fyrir neðan, þar sem Di Maria hittir knöttinn fullkomlega meðan hann er skoppandi og lyftir honum þannig yfir Walter Benitez í marki Nice.

PSG getur komist í 24 stig með sigrinum, eftir 10 umferðir. Nice er um miðja deild, með 13 stig.


Athugasemdir
banner
banner
banner