Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 18. október 2019 21:09
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Granada í toppbaráttuna eftir mark Duarte
Mynd: Getty Images
Granada 1 - 0 Osasuna
1-0 Domingos Duarte ('38)
Rautt spjald: Fran Merida, Osasuna ('92)

Domingos Duarte gerði eina mark leiksins er Granada lagði Osasuna að velli í fyrsta leik helgarinnar í spænska boltanum.

Miðvörðurinn skoraði með skalla eftir góða aukaspyrnu frá Alvaro Vadillo.

Lítið var um færi í bragðdaufum leik en Granada fór upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum og er einu stigi á eftir toppliði Real Madrid, sem á leik til góða líkt og restin af deildinni.

Osasuna er um miðja deild, með 11 stig eftir 9 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner