Leicester og Tottenham mætast í ensku úrvalsdeildinni kl 19:30 í kvöld. Byrjunarliðin eru komin í hús.
Leikmannahópur heimanna í Leicester er ansi þunnskipaður þessa stundina. Jamie Vardy, Jonny Evans, Timothy Castagne, Ryan Bertrand og Ricardo Pereira eru allir frá vegna meiðsla og Kelechi Iheanacho, Daniel Amartey, Wilfred Ndidi and Nampalys Mendy eru í Afríkukeppninni.
Leik liðsins gegn Burnley um síðustu helgi var frestað vegna smita í herbúðum Burnley og hefur liðið því ekki spilað síðan 8. janúar í FA bikarnum. Það eru þrjár breytingar á liðinu sem vann Watford í FA bikarnum. Soyuncu, Thomas og Dewsbury-Hall koma inn í liðið.
Hjá Tottenham eru Eric Dier, Christian Romero og Son Heung-Min frá vegna meiðsla. Antonio Conte gerir þrjár breytingar frá tapinu gegn Chelsea í deildabikarnum fyrir viku síðan.
Lloris kemur aftur í markið, Reguilon, og Oliver Skipp koma inn í liðið.
Leicester: Schmeichel, Albrighton, Vestergaard, Soyuncu, Thomas, Choudhury, Tielemans, Maddison, Dewsbury-Hall, Lookman, Daka.
Tottenham: Lloris, Sanchez, Tanganga, Davies, Reguilon, Royal, Skipp, Winks, Hojbjerg, Moura, Kane.
Athugasemdir