Fotbolti.net
19.01.23 - 18:56
Brynjar Ingi Erluson

Memphis byrjaður að æfa með Atlético

Memphis byrjaður að æfa með Atlético
Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski leikmaðurinn Memphis Depay er byrjaður að æfa með spænska félaginu Atlético Madríd og er því von á tilkynningu á næstu klukkutímum.
Það styttist óðum í að Depay verði tilkynntur sem nýr leikmaður Atlético en félagið hefur verið í viðræðum við Barcelona um að fá hann á láni út tímabilið.

Ronald Koeman fékk Depay til Barcelona á frjálsri sölu frá Lyon fyrir tveimur árum.

Þó hann hafi vissulega skorað 13 mörk á fyrsta tímabili sínu hjá Börsungum, þá tókst honum aldrei að finna sig almennilega og var því ákveðið að leyfa honum að finna sér nýtt félag í þessum glugga.

Hann er þegar byrjaður að æfa með Atlético og má því búast við tilkynningu í von bráðar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.