Fotbolti.net
19.02.20 - 05:55
Elvar Geir Magnússon
Subway

England í dag - Man City leikur fyrsta leik sinn eftir dóminn

Ederson, markvörður Manchester City.

Ederson, markvörður Manchester City.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City verður í sviðsljósinu í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar West Ham mætir í heimsókn á Etihad. Þetta verður fyrsti leikur City eftir að félagið fékk tveggja ára bann frá UEFA fyrir að brjóta reglur um fjárhagslega háttvísi.

City mun áfrýja þessum dómi en spennandi verður að sjá hvernig leikmenn liðsins verða stemmdir gegn David Moyes og lærisveinum í kvöld.

Þessi leikur átti upphaflega að fara fram fyrr í þessum mánuði en var frestað vegna ofsaveðurs á Bretlandseyjum.

City er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar en West Ham er í fallsæti. Moyes hefur kallað eftir því að stuðningsmenn West Ham standi með liðinu í þeirri erfiðu baráttu sem framundan er.
Varnarmennirnir Aymeric Laporte, Benjamin Mendy og John Stones hjá Manchester City eru að snúa aftur úr meiðslum og gætu verið með í kvöld.

Raheem Sterling meiddist aftan í læri gegn Tottenham og verður líklega hvíldur. Þá tekur Úkraínumaðurinn Oleksandr Zinchenko út leikbann.

Felipe Anderson hjá West Ham hefur misst af fimm síðustu leikjum en gæti snúið aftur í kvöld en leikurinn kemur of snemma fyrir Andriy Yarmolenko.

Sóknarleikmaðurinn Jarrod Bowen gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir West Ham en þessi 23 ára leikmaður kom frá Hull City í janúarglugganum.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:30 og er sýndur á Síminn Sport, upphitun hefst 19:00.

Leikur kvöldsins:
19:30 Manchester City - West Ham (Síminn Sport)
West Ham er í fallsæti.

West Ham er í fallsæti.

Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.