Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mið 19. febrúar 2020 11:49
Magnús Már Einarsson
Leicester hefur viðræður við Lallana
Mynd: Getty Images
Leicester hefur hafið viðræður við umboðsmann Adam Lallana, miðjumanns Liverpool.

Hinn 31 árs gamli Lallana verður samningslaus í sumar og mörg félög í ensku úrvalsdeildinni eru með hann á óskalista sínum.

Brendan Rodgers, stjóri Leicester, fékk Lallana til Liverpool á sínum tíma og hann vill vinna með leikmanninum á nýjan leik.

Liverpool ætlar ekki að bjóða Lallana nýjan samning og hann mun fá leyfi til að fara annað í sumar.

Leicester hefur hafið viðræður við umboðsmenn hans en fleiri félög hafa einnig áhuga.
Athugasemdir
banner