Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 19. mars 2023 14:30
Aksentije Milisic
Sævar Atli fékk slæmt höfuðhögg - Hákon og Alfreð búnir að skora
Icelandair
Mynd: Getty Images

Þessa stundina er verið að spila í dönsku úrvalsdeildinni en leikið er í síðustu umferðinni áður en deildin tvískiptist.


Sævar Atli Magnússon var valinn í landsliðshópinn fyrir komandi leiki í undankeppni EM 2024. Hann er  í fyrsta sinn í A-landsliðinu í alþjóðlegum landsleikjaglugga.

Hann var í byrjunarliðinu hjá Lyngby sem er nú er að spila en Sævar þurfti að fara meiddur af eftir einungis 14 mínútna leik. Hann fékk þungt höfuðhögg en náði að ganga sjálfur af velli.

Alfreð Finnbogason kom Lyngby í forystu í leiknum gegn Horsens. Mark hans kom á 25. mínútu leiksins.

Hákon Arnar Haraldsson er einnig í landsliðshópnum en hann kom FCK í forystu á móti Viborg snemma leiks. Þar er staðan 1-0 þegar þetta er skrifað.

Ísland mætir Bosníu í fyrsta leik sínum í undankeppni EM á fimmtudagskvöld.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner