fim 19. maí 2022 23:06
Brynjar Ingi Erluson
Gerrard um lokaumferðina: Ætlum að reyna að gera stuðningsmenn stolta
Steven Gerrard
Steven Gerrard
Mynd: EPA
Steven Gerrard, stjóri Aston Villa, segir að markmiðið fyrir leikinn gegn Manchester City á sunnudag sé að reyna að gera stuðningsmenn stolta.

Villa gerði 1-1 jafntefli við Burnley á Villa Park í síðasta heimaleik liðsins á tímabilinu.

Næst á dagskrá er það Manchester City á Etihad á sunnudag en Villa getur haft mikil áhrif á titilbaráttuna. Ef City tapar stigum þá á Liverpool möguleika á að vinna deildina.

„Stuðningsmennirnir eiga skilið góða frammistöðu gegn Manchester City á sunnudag. Við erum í 14. sæti og stuðningsmennirnir hafa verið frábærir og elt okkur út um allt land. Það minnsta sem við getum gert er að reyna að gera þá stolta."

„Við getum ekki stjórnað því að fólk sé að spyrja okkur að spurningum um titilbaráttuna. Við verðum að einbeita okkur að því að undirbúa okkur eins og vel mögulegt er. Það eru þrjú stig í boði,"
sagði Gerrard.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner