Leifur Andri Leifsson, fyrirliði HK, hefur ekki spilað með liðinu í upphafi móts. Hann hefur verið á varamannabekknum í undanförnum leikjum en ekki komið við sögu.
„Hann er búinn að vera meiddur aðeins í vetur og fór í aðgerð. Hann er búinn að jafna sig á því. Hann er búinn að missa út mikið en það er ljóst að hann þarf að spila næsta leik. Hann þarf að vera klár í það. Gummi og Martin eru búnir að standa sig vel að mörgu leyti og þetta er bara samkeppni og barátta um stöður í liðinu," sagði Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, eftir tapið gegn Keflavík á miðvikudag.

Lestu um leikinn: Keflavík 2 - 0 HK
Brynjar kemur inn á að Leifur þurfi að spila næsta leik. Martin Rauschenberg er á láni frá Stjörnunni sem er næsti andstæðingur HK og má ekki spila gegn liðinu sem hann er samningsbundinn.
Leikurinn er á morgun og fer fram á Samsungvellinum í Garðabæ.
Viðtalið við Brynjar má sjá í heild sinni hér að neðan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir