Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 19. júlí 2021 22:12
Brynjar Ingi Erluson
Vinicius verður áfram hjá Real Madrid
Brasilíski sóknarmaðurinn Vinicius Junior er ekki á förum frá Real Madrid í sumar en þetta herma heimildir Goal.com

Vinicius er 21 árs gamall og er meðal efnilegustu sóknarmönnum heims en hann er í miklum metum hjá Florentino Perez, forseta Real Madrid og þjálfurum liðsins.

Hann hefur verið orðaður við Manchester United undanfarna daga en samkvæmt heimildum Goal.com þá er hann ekki á útleið frá Madrídingum.

Real Madrid er ekki í viðræðum við Man Utd um leikmanninn en Raphael Varane, varnarmaður Madrídinga, gæti þó verið á leið til United.

Vincius er í fríi sem stendur eftir að hafa spilað með Brasilíu á Copa America en hann lék aðeins 64 mínútur á mótinu. Hann verður í lykilhlutverki hjá Real Madrid á næstu leiktíð.
Athugasemdir