Fotbolti.net
19.07.23 - 17:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Logi léttur: Gömlu karlarnir þurfa að fara rífa sig í gang

Auglýsing
Logi Tómasson.

Logi Tómasson.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

„Við erum spenntir fyrir því að spila á móti þeim á heimavellinum okkar og við ætlum að hefna okkar," segir Logi Tómasson, leikmaður Víkings, í samtali við Fótbolta.net.

Á morgun spilar Víkingur seinni leik sinn gegn Riga í forkeppni Sambandseildarinnar. Fyrri leikurinn á Lettlandi reyndist Víkingum erfiður og endaði með 2-0 sigri Riga.
„Við vorum kannski smá hræddir og spiluðum okkar bolta ekki nægilega mikið. Við gáfum þeim þetta upp í hendurnar. Þeir eru með góða einstaklingar og þeir eru góðir í fótbolta. Við þurfum að eiga okkar besta leik til að eiga möguleika, það er þannig."

Logi hefur trú á því að Víkingar geti komið til baka. „Við getum gert allt sem við ætlum okkur. Við þurfum að ná inn fyrsta markinu svo þeir verði smá hræddir. Við höfum fulla trú á þessu."

Breiðablik komst áfram í forkeppni Meistaradeildarinnar í gær. Gefur það Víkingum meiri hvatningu fyrir leikinn á morgun?

„Já og nei. Það er flott hjá þeim, en við erum með okkar markmið og við erum að reyna að komast langt í Evrópu líka. Það var vel gert hjá Breiðabliki að vinna Shamrock, en við erum með okkar markmið að vinna á morgun."

„Maður er í fótbolta til að taka þátt í svona verkefnum. Þetta er ótrúlega gaman," segir Logi en andinn er góður hjá Víkingum, sem eru á toppi Bestu deildarinnar. „Andinn er mjög góður. Ungir hafa unnið á þremur æfingum í röð og við ungu leikmennirnir erum mjög glaðir. Gömlu karlarnir þurfa að fara rífa sig í gang," sagði bakvörðurinn léttur.

Hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.