Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 19. ágúst 2019 16:27
Elvar Geir Magnússon
Mamma Balotelli grét þegar hann skrifaði undir
Silvia og Mario.
Silvia og Mario.
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli segir að móðir sín hafi grátið af gleði þegar hann skrifaði undir samning við Brescia.

„Það var draumur föður míns að sjá mig í treyju Brescia," segir Balotelli.

Balotelli fæddist í Palermo en hann var ættleiddur til Brescia þegar hann var tveggja ára gamall. Fósturfaðir hans lést nýlega en móðirin býr enn í borginni.

„Ákvörðunin að ganga í raðir Brescia var ekki erfið. Ég vil hjálpa liðinu að vaxa," segir Balotelli sem er ekki hræddur við pressuna.

„Ég horfi ekki á sjónvarp og les ekki umfjöllun um mig. Þegar það er neikvæð umfjöllun um mig þá heyri ég það frá öðrum. Ég er orðinn vanur þessu. Það geta ekki allir elskað mann."

„Brescia er borgin mín og mamma grét þegar ég sagði að ég gæti verið á leið heim. Ég spurði hana álits og hún bara gret. Hún var rosalega ánægð."

„Pabbi minn hélt með Brescia og það var draumur hans að sjá mig spila fyrir liðið."

Balotelli verður ekki með í fyrstu fjórum umferðum ítölsku A-deildarinnar þar sem hann á enn eftir að taka út leikbann frá Frakklandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner