Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 19. september 2022 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tielemans feginn að fá frí frá Leicester - „Þurfum að hlaða batteríin"
Mynd: Getty Images

Það gengur ekkert hjá Leicester í upphafi tímabilsins en liðið er með eitt stig á botni deildarinnar eftir sjö leiki. Liðið tapaði 6-2 gegn Tottenham um helgina.


Belgíski landsliðsmaðurinn Youri Tielemans hefur sameinast félögum sínum í landsliðinu en hann segist feginn að fá frí frá Leicester.

„Ég er ánægður að fá smá ferskt loft hér með Belgíu því það er erfitt hjá Leicester núna. Það er ljóst að hlutirnir ganga ekki vel en við erum að reyna allt sem við getum," sagði Tielemans.

„Öll þessi töp hafa haft áhrif á allan hópinn. Við þurfum að nýta þetta frí til að hlaða batteríin. Það er erfitt að hætta að hugsa um þetta, þetta fer í gegnum hugann minn stanslaust. Það eru bara krakkarnir mínir sem ná að koma í veg fyrir það stundum."

Belgía mætir Wales og Hollandi í Þjóðadeildinni í vikunni.


Athugasemdir
banner
banner