Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 19. nóvember 2022 21:10
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Suarez viss um að Nunez muni ná frábærum árangri hjá Liverpool
Mynd: EPA

Úrugvæinn Luis Suarez fyrrum leikmaður Liverpool hefur mikla trú á landa sínum, Darwin Nunez hjá Liverpool.


Nunez gekk til liðs við Liverpool í sumar frá Benfica en hann hefur skorað átta mörk í 16 leikjum fyrir liðið í deild og Meistaradeild.

„Hann hefur sprungið út og ég er viss um að hann muni skora mörg mörk og vinna marga titla með félaginu. Ég tala reglulega við hann og ég vil hjálpa honum og ég vil að hann læri af mínum mistökum," sagði Suarez en hann átti frábæran feril fyrir Liverpool en var mikið í sviðsljósinu fyrir aðra hluti en fótboltann einnig.

Úrugvæ mætir Suður Kóreu, Portúgal og Gana í riðlakeppni HM. Menn á borð við Luis Suarez, Edinson Cavani og Diego Godin eru væntanlega að spila á sínu síðasta stórmóti.

„Við viljum gera vel, að spila á fjórum heimsmeistaramótum er algjör draumur en ég vona að þetta verði það besta. Það er alltaf erfitt að ræða það hverjir eru líklegastir. Auðvitað er draumurinn okkar að komast í úrslit og ég held að Suður Ameríku liðin verði sterk, Brasilía og auðvitað Argentína eru mjög sterk," sagði Suarez.

„Ég hef átt einstakt samband við Messi síðan ég kom til Barcelona og það væri draumur að mæta vini mínum í úrslitum,"


Athugasemdir
banner
banner