Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 20. janúar 2023 18:59
Brynjar Ingi Erluson
Tuchel hefur aðeins áhuga á að taka við Barcelona eða Real Madrid
Thomas Tuchel
Thomas Tuchel
Mynd: EPA
Þýski þjálfarinn Thomas Tuchel hefur aðeins áhuga á að taka við Barcelona eða Real Madrid. Þetta segir Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi.

Tuchel hefur verið án starfs síðan í september er hann var látinn fara frá Chelsea.

Fyrr í dag var sagt að hann væri áhugasamur um að taka við Tottenham í sumar ef Antonio Conte ákveður að hætta með liðið en Sky í Þýskalandi heldur öðru fram.

Þar er sagt að aðeins tvö félög komi til greina hjá þýska þjálfaranum en það eru Barcelona og Real Madrid.

Tuchel er mikill aðdáandi Pep Guardiola og La Masia-akademíunnar hjá Barcelona.

Juventus hefur einnig áhuga á Tuchel en þjálfarinn er ekki klár í það verkefni. Tuchel er þegar byrjaður að læra spænsku og því ekki á döfinni að fara til Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner