Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 20. febrúar 2021 17:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu mörkin: Óskar Örn eldist eins og fínt vín
Óskar Örn verður 37 ára í sumar.
Óskar Örn verður 37 ára í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Örn Hauksson átti sannkallaðan stórleik fyrir KR þegar liðið vann stórsigur á Fram í Lengjubikarnum í dag.

KR vann 8-2 sigur en Óskar kom að sex mörkum KR-inga í leiknum, hvorki meira né minna.

Óskar skoraði fyrst þrennu og lagði svo upp tvö mörk fyrir KR-liðið. Óskar verður 37 ára gamall í sumar en er enn í fullu fjöri.

KR 8 - 2 Fram
1-0 Óskar Örn Hauksson ('9)
2-0 Óskar Örn Hauksson ('41)
3-0 Guðjón Baldvinsson ('54)
4-0 Óskar Örn Hauksson ('57)
5-0 Pálmi Rafn Pálmason ('62, víti)
6-0 Guðjón Baldvinsson ('69)
7-0 Atli Sigurjónsson ('74)
7-1 Haraldur Einar Ásgrímsson ('78)
7-2 Aron Þórður Albertsson ('85)
8-2 Oddur Ingi Bjarnason ('90)

Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr leiknum af vefsíðu Vísis.



Athugasemdir
banner
banner