Það gengur lítið hjá PSG þessa dagana en liðið er fallið úr leik í Meistaradeildinni og tapaði fjórða leik sínum í deildinni í gær.
Liðið tapaði 2-0 gegn Rennes og hefur fengið mikla gagnrýni en Christophe Galtier stjóri liðsins benti á að það vantaði marga sterka leikmenn.
„Leikmennirnir mínir gáfu allt sem þeir höfðu. Setjið ykkur í spor leikmannana, þeir sjá sjö leikmenn fjarverandi og labba inn í klefa með unglingum sem þeir hafa séð einu sinni eða tvisvar á æfingum," sagði Galtier.
Stuðningsmenn PSG bauluðu á Lionel Messi þegar hann var kynntur til leiks í gær.
Leikmenn á borð við Achraf Hakimi, Presnel Kimpembe, Marquinhos, Neymar og Sergio Ramos eru á meiðslalistanum.
Athugasemdir