17.10.26 - 18:16
Ívan Guðjón Baldursson
Tryggvi Hrafn sló stoðsendingametið í efstu deild

Tryggvi í leiknum gegn KA í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Tryggvi Hrafn Haraldsson sló stoðsendingamet efstu deildar íslenska boltans með þremur stoðsendingum í flottum sigri Vals í dag.
Lestu um leikinn: Valur 4 - 1 KA
Tryggvi Hrafn er þar með kominn með 15 stoðsendingar í Bestu deildinni í sumar og 10 mörk.
Hann bætir gamla stoðsendingametið um tvær stoðsendingar en fimm mismunandi leikmenn hafa náð 13 stoðsendingum á einu tímabili í efstu deild.
Þeir eru Hallgrímur Mar Steingrímsson, Kjartan Kári Halldórsson, Atli Guðnason, Tryggvi Guðmundsson og Adam Ægir Pálsson. Tölfræðin er fengin úr Íslensk knattspyrna, bókunum hans Víðis Sigurðssonar og það er Óskar Ófeigur Jónsson sem hefur haldið utan um stoðsendingatölfræðina.