Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 20. apríl 2021 23:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Agnelli segist ekki á förum frá Juventus
Mynd: Getty Images
Í kvöld voru sögusagnir í kringum það að Andrea Agnelli, forseti Juventus og varaformaður Ofurdeildarinnar, hefði sagt af sér sem forseti Juventus.

Hann tjáði sig við ítalska fjölmiðilinn la Repubblica í kvöld.

Hann segir þar að það sé ekkert til í þvi að hann sé að segja af sér.

Tólf félög ætluðu sér að vera stofnendur að Ofurdeildinni. Ensku félögin sex hafa tilkynnt um að þau ætli sér ekki að taka þátt í deildinni en óljóst er með ítölsku félögin þrjú og spænsku félögin þrjú.

Juventus er eitt af ítölsku félögunum.
Athugasemdir
banner
banner