Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 20. maí 2021 18:00
Brynjar Ingi Erluson
Traore að framlengja við Wolves
Adama Traore verður áfram hjá Wolves
Adama Traore verður áfram hjá Wolves
Mynd: Getty Images
Spænski vængmaðurinn Adama Traore er nálægt því að framlengja samning sinn við Wolves þrátt fyrir áhuga Barcelona og Liverpool síðustu mánuði.

Traore, sem er 25 ára gamall, var opinn fyrir því að yfirgefa Wolves eftir að hann missti sæti sitt í liðinu fyrr á þessu tímabili.

Honum tókst að vinna sig aftur inn í liðið og er nú ánægður hjá félaginu eftir því sem Goal.com kemst næst.

Traore er í samningaviðræðum við Wolves en núverandi samningur rennur út árið 2023.

Barcelona og Liverpool hafa sýnt leikmanninum áhuga síðustu mánuði en Traore hefur farið fram á að það verði klásúla í samningnum sem leyfir honum að fara í stærra lið ef ákveðnum skilyrðum er mætt.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner