Fotbolti.net
20.06.22 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Dortmund gerir Ajax tilboð sem erfitt er að hafna

Sebastien Haller.

Sebastien Haller.

Canon

Mynd: EPA

Þýska félagið Borussia Dortmund ætlar sér að kaupa sóknarmanninn Sebastian Haller frá Ajax í Hollandi í sumar.
Dortmund var að selja Erling Braut Haaland í sumar og þarf einhvern veginn að leysa hann af hólmi.

Hollenski íþróttafréttamaðurinn Mike Verweij segir frá því að Dortmund sé búið að bjóða í Haller og það sé tilboð sem erfitt er fyrir Ajax að hafna. Tilboðið er upp á 33 milljónir evra og gæti svo hækkað eitthvað í framtíðinni ef leikmaðurinn stendur sig vel.

Haller er 27 ára gamall og skoraði hann 34 mörk í 43 leikjum á síðustu leiktíð. Hann fór meðal annars mikinn í Meistaradeild Evrópu.

Það eru allar líkur á því að Haller endi í Dortmund en Ajax mun eitthvað reyna að hækka verðið, upp í kringum 40 milljónir evra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.