Al Arabi lagði botnlið Al Shahaniya 2-1 í úrvaldseildinni í Katar í gær. Al Arabi er á toppi deildarinnar í augnablikinu með tíu stig.
Aron Einar Gunnarsson spilar með Al Arabi en Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið og Bjarki Már Ólafsson er aðstoðarþjálfari.
Aron Einar Gunnarsson spilar með Al Arabi en Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið og Bjarki Már Ólafsson er aðstoðarþjálfari.
Al Arabi fékk draumabyrjun í leiknum í gær því liðið skoraði eftir einungis 10 sekúndur.
Khalifa Al Dosari, markvörður Al Shahaniya, gerði sig þá sekan um ævintýraleg mistök eins og sjá má hér að neðan.
Fyrrum hollenski landsliðsmaðurinn Nigel de Jong er í liði Al Shahaniya en byrjun þeirra á tímabilinu hefur verið mjög erfið.
Qatari goalkeeper's howler leads to goal after just 10 seconds https://t.co/vdMS2hRN8G pic.twitter.com/sUuYXkBE4p
— Guardian sport (@guardian_sport) September 20, 2019
Athugasemdir