20.09.20 - 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Messi kveður Vidal: Þín verður sárt saknað

Vidal er að fara frá Barcelona.

Mynd: Getty Images

Vidal er að fara frá Barcelona.

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Arturo Vidal er lentur í Mílanó þar sem hann mun ganga í raðir Inter.
Barcelona vill losa sig við Vidal og verður hann leikmaður Inter í vikunni. Talið er að hann fari í læknisskoðun á morgun hjá ítalska stórliðinu.
Sjálfur Lionel Messi þakkaði Vidal fyrir samstarfið á samfélagsmiðlinum Instagram. Vidal er 33 ára gamall og hefur spilað með Barcelona frá 2018.
„Ég þekkti þig bara sem andstæðing og þú varst alltaf ótrúlegur. Svo var ég það heppinn að spila með þér og þú komst mér enn meira á óvart. Þín verður sárt saknað í búningsklefanum," skrifaði Messi meðal annars.
Messi vildi sjálfur fara frá Barcelona í sumar en hann ákvað að lokum að vera áfram.