Fotbolti.net
20.11.19 - 14:56
Elvar Geir Magnússon

Emery nú líklegastur til að fá sparkið

Unai Emery, stjóri Arsenal.

Unai Emery, stjóri Arsenal.

Canon

Mynd: Getty Images

Unai Emery, stjóri Arsenal, er nú talinn líklegastur samkvæmt veðbönkum til að vera næsti stjóri sem verður rekinn.

Mauricio Pochettino var á þeim lista en hann var rekinn frá Tottenham í gær og Jose Mourinho var kynntur sem nýr stjóri í morgun.
Undir stjórn Emery hefur Arsenal aðeins unnið tvo af síðustu tíu úrvalsdeildarleikjum.

Spánverjinn fékk yfir 100 milljónir punda í að styrkja hóp sinn í sumar en stigasöfnunin hefur ekki verið eftir því.

Tapið gegn Leicester í síðustu umferð skilur Arsenal níu stigum frá Meistaradeildarsætunum. Það er pressa á Emery að snúa þessu gengi við.

Þá hafa ýmsar ákvarðanir hans verið harkalega gagnrýndar, til dæmis sú ákvörðun að gera Granit Xhaka að fyrirliða.

Mourinho hefur verið orðaður við Arsenal en nú er ljóst að það er ekki að fara að gerast.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.