Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 20. nóvember 2021 14:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bose bikarinn: FH lagði Val í Skessunni
Logi Hrafn og Matthías voru á skotskónum í dag
Logi Hrafn og Matthías voru á skotskónum í dag
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH 3-1 Valur

Íslenski boltinn er byrjaður að rúlla en fyrsta leik í Bose mótinu er lokið. FH lagði Val í Skessunni í Hafnarfirði.

Staðan var 2-0 í hálfleik heimamönnum í vil. FH bætti síðan þriðja markinu við. Sverrir Páll Hjaltested skoraði síðan fyrir val. Logi Hrafn Róbertsson, Eggert Gunnþór Jónsson og Matthías Vilhjálmsson skoruðu mörk FH.

Liðin spila í B-riðli ásamt Víkingi R. Valur heimsækir Víking um næstu helgi.

Byrjunarlið FH: Daði - Hörður Ingi, Arngrímur, Eggert, Haraldur, Logi, Björn Daníel, Jónatan Ingi, Baldur Logi, Oliver, Matthías

Byrjunarlið Vals: Guy Smit, Birkir Már, Haukur Páll, Rasmus, Heiðar, Birkir Heimis, Arnór, Guðmundur, Tryggvi, Sigurður, Pedersen
Athugasemdir
banner
banner