Argentínski snillingurinn Lionel Messi skoraði fyrsta deildarmark sitt fyrir Paris Saint-Germain í 3-1 sigri liðsins á Nantes í kvöld.
Messi gekk til liðs við PSG í sumar á frjálsri sölu frá Barcelona en það tók hann sex deildarleiki til að skora fyrsta markið í frönsku deildinni.
Hann er með þrjú mörk í þremur leikjum í Meistaradeildinni en fyrsta deildarmarkið kom í kvöld.
Markið gerði hann á 87. mínútu eftir sendingu frá Kylian Mbappe en PSG spilaði manni færri síðasta hálftímann eftir að Keylor Navas var rekinn af velli.
Mbappe gerði fyrsta mark PSG. Neymar var óvænt í byrjunarliðinu en hann meiddist í landsleikjatörninni. Sergio Ramos var ekki í hópnum hjá PSG.
PSG er í efsta sæti deildarinnar með 37 stig, tólf stigum á undan næsta liði.
Athugasemdir