sun 20. nóvember 2022 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvaða lið verður heimsmeistari? - Fjögur lið nefnd
Tíu sérfræðingar svara tíu spurningum fyrir HM
Lið Brasilíu þykir líklegt til afreka.
Lið Brasilíu þykir líklegt til afreka.
Mynd: EPA
Portúgal er með mjög öflugt lið.
Portúgal er með mjög öflugt lið.
Mynd: EPA
Argentína verður líka með í baráttunni.
Argentína verður líka með í baráttunni.
Mynd: EPA
Þjóðverjar gætu farið alla leið.
Þjóðverjar gætu farið alla leið.
Mynd: Getty Images
HM í Katar er farið af stað, opnunarleikurinn er í gangi. Við fengum tíu vel valda sérfræðinga til að svara tíu spurningum sem tengjast mótinu áður en rúllað var af stað.

Síðasta spurningin er að sjálfsögðu: Hvaða lið fer alla leið og vinnur mótið?

Arnar Laufdal, Fótbolti.net
Ég sagði í Messi gegn Ronaldo spurningunni að ef ég mætti ráða þá væri ég frekar til í að Messi myndi vinna. Ég persónulega held hins vegar að Portúgalir vinni þetta mót, finnst þeir vera ótrúlega vel mannaðir í öllum stöðum og þeir taka þetta mót.

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, sérfræðingur RÚV
Argentína, og Messi mun loka sínum stórkostlega ferli á þessum stóra titli með landsliðinu.

Gunnar Birgisson, RÚV
Argentína vinnur þetta mót og fara alls ekki auðvelda leið að þessum titli. Vinna Dani í 16-liða, Holland í 8-liða og Spánverja í undanúrslitum.

Helga Margrét Höskuldsdóttir, RÚV
Tuttugu ára bið eftir sjötta Heimsmeistaratitlinum tekur enda og Brasilía vinnur.

Jasmín Erla Ingadóttir, Stjarnan
Ég ætla segja Argentína því ég hef haldið með þeim síðan ég var lítil og hef mikla trú á þeim núna.

Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram
Eg er með góða tilfinningu fyrir Þýskalandi. Eitthvað sem segir mér að þeir fari alla leið og klári mótið. Einnig finnst mér Portúgalir með mjög spennandi og skemmtilegt lið.

Sigríður Lára Garðarsdóttir, FH
Argentína.

Sigurður Gísli Bond Snorrason, Afturelding
Ég ætla að spá Portúgal sigri á mótinu, Ronaldo verður í 'revenge mode' og setur sjö mörk. Bruno verður í stuði, en hins vegar ef að Portúgal klikka eitthvað á peppinu og Ronaldo fær ekki að vera kóngurinn sem hann á að vera þá klárar Neymar þetta mót fyrir Brassana.

HALA PORTUGAL

Tómas Þór Þórðarson, Síminn Sport
Brasilía vinnur þetta. Það er aðallega von mín en ég held að Brassarnir taki þetta. Einn besti markvörðurinn, fínasta vörn, solid miðja og ruglaðasta safn af framherjum sem sést hefur. Reyndar engin nía þannig séð en nóg af gaurum sem geta tekið skærin og skorað.

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, Valur
Ég held að Argentínu muni fara alla leið, þeir eru með mjög gott lið og vel spilandi.

Sjá einnig:
Með hvaða liði heldur þú?
Hvaða lið kemur á óvart?
Hvaða lið kemur á óvart?
Mest spennandi leikurinn í riðlakeppninni?
Hvað finnst þér um að HM fari fram að vetri til?
Hver verður markakóngur?
Hver á að vera í markinu hjá Brasilíu?
Hvernig mun Englandi vegna á mótinu?
Hvort viltu frekar að Messi eða Ronaldo vinni mótið
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner