Fotbolti.net
21.02.21 - 11:44
Aksentije Milisic

Nicky Butt og Mark Dempsey aðstoða Ole í kvöld

Butt.

Butt.

Canon

Mynd: Getty Images

Þrír þjálfarar í þjálfarateymi Manchester United hafa greinst með kórónaveiruna og eru þeir nú komnir í sóttkví.
Þeir Nicky Butt og Mark Dempsey, sem starfa báðir í kringum aðalliðið, verða Ole Gunnar Solskjær, stjóra liðsins, til halds og traust á bekknum í kvöld.

Þetta staðfesti félagið með yfirlýsingu rétt í þessu eftir að fréttir bárust frá Manchester borg að smit hafi greinst hjá þjálfarateyminu.

Þjálfararnir sem greindust fóru ekki með í ferðalagið til Ítalíu í síðustu viku þegar Manchester United vann öruggan 4-0 sigur á Real Sociedad í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Leikurinn gegn Newcastle United fer fram klukkan 19 í kvöld á Old Trafford.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.