Lionel Messi er stoðsendingakongur knattspyrnuheimsins með 279 stoðsendingar á ferlinum.
Mesut Özil er í öðru sæti með 253 stoðsendingar en er 16 mánuðum yngri og virðist vera sá eini sem á möguleika á að ná stoðsendingafjölda Messi á næstu árum.
Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegt myndband sem sýnir stoðsendingafjölda bestu leikmanna heims í gegnum árin.
Cristiano Ronaldo er í þriðja sæti og fylgja Luis Suarez, Franck Ribery og Cesc Fabregas þar á eftir.
Angel Di Maria, Thomas Müller, David Silva og Karim Benzema eru einnig á listanum.
Comparing the assist records of top players throughout their careers, featuring Messi, Ozil, Fabregas, and Suarez from r/soccer
Athugasemdir